Dagsetningar verða staðfestar
Haust 2026 — Skráning er lokuð.
Dagsetningar vantar eða eru ósamræmdar í eldri upplýsingum og verða staðfestar af skólanum.
Olíu/Akríl-Málun og blönduð tækni
Þriðjudaga
kl. 15:00 - 18:00
10 vikur
(40 kennslustundir)
Kennari
:
Soffía Sæmundsdóttir
Lagt upp með skissubækur, akrílliti, blek, kol og kjark til að gera tilraunir, leita að sinni fjöl og njóta þess að skapa. Leiðsögn í lita- og formfræði ásamt myndbyggingarpælingum er ávallt samtvinnuð vinnuferlinu. Verklag og vinnuaðferðir listafólks skoðuð (myndbönd, bækur).
Í skissubókavinnunni er notast við vatnsleysanleg efni (s.s.akrílliti, vatnsliti) ásamt blýöntum, krít og fleiru. Nemendum er síðan í sjálfsvald sett hvort þeir mála með olíu eða akríl á striga/pappír í framhaldinu.
Nemendur eru hvattir til að taka með sér skissubók/bækur, eigi þeir slíkar. Annað efni verður á staðnum í fyrsta tíma og lista yfir varning sem gott er að eiga verður þá dreift.