14. september 2026 – 7. desember 2026 (bráðabirgðadagsetningar)
Haust 2026 — Skráning er lokuð.
Dagsetningar samkvæmt áður birtum námskeiðsupplýsingum. Endanleg staðfesting skólans á síðustu kennslustund liggur ekki fyrir.
Akrýl- og Olíumálun
byrj. og framhald
Mánudaga
kl. 18:30 - 21:30
13 vikur
(52 kennslustundir)
Kennari
:
Birgir Rafn Friðriksson
Námskeið Birgis Rafns er fyrir þá sem vill þróa sig áfram í sinni myndlist á persónulegan og ögrandi hátt. Á námskeiðinu er málunarferli hvers og eins skoðað með uppbyggilegu sjónarmiði.
Ýmis tæknileg atriði skoðuð og rædd, fjölbreyttar aðferðir og notkun lita og verkfæra. Farið verður í mörg fleiri praktísk atriði við málverkið og málunarferlið. Hugmyndir, hugmyndavinna, skissugerð og annar undirbúningur eru m.a. annars hluti af þvi. Unnið verður að þessu í gegnum skemmtileg verkefni sem Birgir Rafn leggur fyrir og önnur eigin verkefni nemendanna.
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja halda áfram að þróa sig og ögra sjálfum sér, skoða ferlið sitt og finna nýjar spennandi leiðir í málaralistinni.