14. september 2026 – 7. desember 2026 (bráðabirgðadagsetningar)
Haust 2026 — Skráning er lokuð.
Dagsetningar samkvæmt áður birtum námskeiðsupplýsingum. Endanleg staðfesting skólans á síðustu kennslustund liggur ekki fyrir.
Haust - Teiknun
byrjendur
Mánudaga
kl. 18:30 - 21:30
12 vikur
(52 kennslustundir)
Kennari
:
Daníel Brynjólfsson
Í teikningu er lögð áhersla á formfræði og myndbyggingu, unnið með grátónaskala skyggingar, línuteikningu, frumform, uppstillingar, fjarvíddarteikningar og hraðskissuæfingar. Nemendur kynnast mismunandi pappír og mismunandi teikniáhöldum svo sem: blýöntum, kolum, pastellitum, trélitum, tússpennum og tússbleki. Markmiðið er að skoða umhverfið í nýju ljósi, virkja sjónræna skynjun og verða færari í að koma hugmyndum sínum á blað.
Athugið, hvert námskeið sem er 52 kennslustundir veitir 2 einingar til stúdentsprófs (háð því að nemandi skili 80% mætingu).